-
Fréttir í mars:
-
26. mars er skemmtun í sal og opið á
milli deilda.
-
23. mars er yngismannadagur og þá
ætla stelpurnar að gera strákunum daginn eftirminnilegan.
-
19. mars ætlum við að kíkja í
póstkassann aftur.
-
12. mars á Jóhann Mikael 3ja ára
afmæli og þá er líka söngsalur.
-
Föstudaginn 5. mars ætlum við að
opna póstkassann okkar og kíkja hvort við höfum fengið einhver
bréf.
-
Föstudaginn 5. mars er leikskólinn
lokaður frá 12:15 vegna kennarafunda.
-
Þriðjudaginn 2. mars er skemmtun í
sal í boði Huldusteins
-
Fréttir í febrúar:
-
23. febrúar er skemmtun í sal í boði
Huldusteins og 26. febrúar er opið á milli deilda.
-
15. 16. 17. febrúar eru bollu-
sprengi- og öskudagur. Við höldum upp á þá með tilheyrandi gleði
og gamni. Borðum bollur, fáum saltkjöt og baunir og komum í
búningum á öskudaginn. Þann dag förum við á milli deilda og
syngjum hvert fyrir annað og sláum svo „köttinn“ úr tunnunni í
sal og höfum öskudagsball.
-
10. febrúar er afa- og ömmukaffi á
Vökuvöllum. Þá baka börnin og bjóða öfum og ömmum í kaffi á
milli 8:00-9:00. Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomin líka og
ekki síst ef börnin eiga ekki afa og ömmu í bænum.
-
Tveir drengir verða þriggja ára í
febrúar. Það eru Kristófer Lárus 2. febrúar og Hjörvar Hugi 27.
febrúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með það.
-
5. febrúar hættir Maron Dagur hjá
okkur. Við kveðjum hann með söknuði og óskum honum og fjölskyldu
hans alls hins besta.
-
1.-5. febrúar er opin vika í
leikskólanum, í tengslum við dag leikskólans sem er laugardaginn
6. febrúar. Við bjóðum gesti velkomna til okkar þessa daga og
fjölskyldur barnanna eru sérstaklega velkomin í heimsókn að
fylgjast með börnunum sínum.
-
1.-5 febrúar er tannverndarvika. Þá
leggjum við áherslu á að fræða börnin um tennur og tannhirðu.
Fréttir í janúar:
-
29. janúar. Í dag var Sigrún okkar Ágústa að fara í
veikindaleyfi og síðan í fæðingarorlof. Við óskum henni alls
hins besta í því skemmtilega verkefni sem hún er að fara að
takast á við og hlökkum til að fá hana aftur. Jóna Rún kemur á
deildina og tekur við hópnum hennar Sigrúnar. Við bjóðum hana
velkomna í hópinn.
-
29. janúar verður opið á milli deilda
-
26. janúar byrjar nýtt barn hjá
okkur á Vökuvöllum. Það er stúlka sem heitir Katrín Sól. Við
bjóðum hana innilega velkomna í hópinn hjá okkur.
-
25. janúar bjóða börnin á Búðargili
okkur á skemmtun í sal.
-
Á bóndadaginn 22. janúar verður
þorrablót í leikskólanum. Þá borðum við saman þorramat og
syngjum og skemmtum okkur.
-
19. janúar fáum við heimsókn frá
minjasafninu og þá fáum við að sjá ýmsa hluti sem notaðir voru í
gamla daga.
-
15. janúar ætlum við að hafa
náttfatadag. Þá væri gaman að börnin kæmu í/með náttföt í
leikskólann og við ætlum að njóta dagsins og hafa það notalegt á
náttfötunum. Þann dag er líka söngsalur þar sem allir koma saman
í sal og syngja saman.
-
7. janúar ætlum við að leika okkur
með ljós og skugga. Þá mega börnin koma með vasaljós í
leikskólann. Munið að merkja þau vel.
-
6. janúar verður þrettándagleði í
leikskólanum. Þá förum við öll út, syngjum saman og skjótum
upp flugeldum til að kveðja jólin.
-
Ingibjörg Helga (Inga)
leikskólakennari, byrjar hjá okkur á Vökuvöllum 4. janúar. Hún
er kennari á Búðargili svo börnin kannast við hana.Við bjóðum
hana innilega velkomna til okkar. Hulda Ragnars flytur sig yfir
á Búðargil og við þökkum henni innilega fyrir samstarfið
-
Tvö börn verða þriggja ára í janúar.
Það eru Aron Daði og Snæbjörn Ingi sem eiga afmæli 15. og 26.
janúar. Við óskum þeim innilega til hamingju með það.
-
Við óskum ykkur gleðilegs árs og
þökkum fyrir liðið ár.
-
Fréttir í desember:
-
Nú eru börnin okkar að byrja að fara
í jólafrí. Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári. Hittumst hress.
-
Sl. föstudaginn byrjaði Ingibjörg
Hulda hér á Naustatjörn. Hún verður í aðlögun að starfinu hjá
okkur á Vökuvöllum en verður síðan í afleysingum á yngri
deildunum. Við bjóðum hana velkomna til starfa.
-
Við á Vökuvöllum höfum ákveðið
að hafa dagana eftir að hópastarfi lýkur fyrir jólin, á rólegu
nótunum. Við reynum að hafa dagana sem mest í föstum skorðum og
njótum þess að syngja og leika saman. Ætlum okkur líka að nota
góða veðrið úti.
-
18. desember eru litlu jólin okkar.
Þá dönsum við í kringum jólatréð í salnum, fáum góða gesti í
heimsókn og borðum saman jólamat í salnum. Hérna eru
myndir
frá litlu jólunum okkar.
9. desember er jólasveinahúfudagur í
leikskólanum. Þá geta börnin komið með jólasveinahúfur í
leikskólann og það verður drukkið kakó í salnum. Hérna eru þær
sameiginlegu
myndir sem teknar voru í salnum á "kaffihúsinu" okkar.
Hérna eru þær
myndir sem teknar voru af okkur á Vökuvöllum þennan dag
-
4. desember er jólaföndur foreldra
og barna í leikskólanum. Þá er foreldrum boðið að koma í
leikskólann 9:00-10:30 eða 14:00-15:30 og föndra með börnunum
sínum. Mismunandi verkefni eru í boði á deildum og
foreldrar geta farið á milli deilda og föndrað og fengið sér svo
kaffi og kökurnar sem börnin eru búin að baka í kaffihúsinu í
salnum. Vonandi eiga allir ánægjulegan dag með okkur í
Naustatjörn. Hérna má sjá
myndirnar sem teknar voru hjá okkur á Vökuvöllum.
-
3. desember ætlum við að fara í
strætóferð í bæinn og skoða jólaljósin og skreytingarnar. Við
leggjum af stað kl. 9:30. Hérna eru
myndirnar sem teknar voru í ferðinni.
-
2. desember bökum við fyrir jólaföndurdaginn.
Hérna eru
myndir frá því.
Fréttir í nóvember:
-
26. nóvember er Tjarnarhóll með
skemmtun í sal fyrir okkur og 27. nóvember er opið á milli
deilda.
-
Föstudaginn 13. nóvember er
rugludagur. Ýmislegt er hægt að gera í tilefni þess, s.s. að
börnin komi í ranghverfum fötum, sokkum sinn af hvorum lit og í
leikskólanum komum við til með að rugla ýmsum þáttum starfsins
frá því sem venja er. Hér má sjá nokkrar
myndir
sem voru teknar af börnunum þennan skemmtilega dag.
-
3 börn eiga afmæli í mánuðinum.
Sunneva Huld verður 2ja ára
9. nóvember, Maron Dagur verður síðan 2ja ára 19. nóvember og
hérna má sjá
myndir af þeim í afmælissamveru. Loks verður Sólon
2ja ára 30. nóvember og hér eru
afmælismyndirnarnar hans. Við óskum þeim öllum innilega til
hamingju með afmælin sín.
-
Leikskólinn verður lokaður
föstudaginn 6. nóvember frá kl. 12:15
Fréttir í október:
-
28. október erum við á Vökuvöllum
með skemmtun í sal þar sem við förum uppá svið og syngjum hin
ýmsu lög. Fyrst syngjum við nokkur lög og síðan eru sungin
nokkur lög með öllum salnum. Hérna má sjá
myndir
frá þessari vel heppnuðu skemmtun okkar.
-
26. október byrjar bangsavika. Þá
mega börnin komið með bangsa í leikskólann.Við lesum bangsasögur
og syngjum um bangsa.
-
23. október verður náttfataball í
leikskólanum. Þá geta börnin komið í náttfötum eða með náttföt í
leikskólann og við munum dansa saman í salnum. Hérna má sjá
myndir
frá náttfataballinu.
-
14. október verður foreldrakaffi hjá
okkur. Þá verða börnin búin að baka köku og bjóða ykkur
foreldrum sínum í kaffi. Hérna má sjá
myndir
frá bakstrinum og hérna má sjá
myndir frá
foreldrakaffinu.
-
4. október urðu Katla Huld og Sonja
Elísabet 2 ára. Við óskum þeim innilega til hamingju með
afmælið. Þær voru svo heppnar að fá að halda uppá afmælin sín í
söngsal með öllum krökkum leikskólans. Hérna má sjá
myndir frá því.
-
31. ágúst: Í dag byrjar Inga Bára
Ragnarsdóttir leikskólakennaranemi í HA í vettvangsnámi hjá
Sibbu. Hún verður hjá okkur í 10 vikur, 8 tíma á daga fyrstu 4
vikurnar og síðan 6 tíma á dag eftir það. Við bjóðum hana
innilega velkomna til okkar.
-
24. ágúst: Í dag byrjaði aðlögun 4
barna hjá okkur, fædd 2007. Þau heita Sunneva Huld, Jóhann
Mikael, Karen Dögg og Kolbrún Anna. Hérna má sjá nokkrar
myndir frá leiknum þeirra inni í dag.
-
21. ágúst: Í dag fórum við fram í
listasmiðju þar sem allir vatnsmáluðu eina mynd :) við tókum
eina mynd af hverju barni á meðan þau voru að mála.
-
20. ágúst: Í dag kvöddum við
formlega þau þrjú börn sem misstu af kveðjustundinni þann 13.
ágúst. Þau voru Alex Rúnar, Árveig Lilja og Tinna Katrín. Við
viljum þakka þeim og fjölskyldum þeirra fyrir samveruna á
Vökuvöllum. Hérna er hægt að sjá
myndir úr kveðjusamverunni þeirra.
-
Í dag voru nýju börnin okkar í hvíld
í fyrsta skiptið hjá okkur. Við tókum mynd af börnunum sofandi
og þær má sjá
hér.
-
17. ágúst: Í dag byrjaði hjá okkur
nýr starfsmaður, Hulda Ragnarsdóttir og verður hún í 100% stöðu.
Við bjóðum hana velkomna í hópinn. Einnig byrjaði í dag aðlögun
6 nýrra barna, fædd árið 2007. Við viljum einnig bjóða þau og
fjölskyldur þeirra velkomin.
-
Í dag átti Lena afmæli og hér má sjá
myndir úr afmælissamverunni.
-
13. ágúst: Í dag lauk aðlögun
barnanna fædd 2005 yfir á Búðargil og Huldustein. Á morgun mæta
þau öll á sínar nýju deildir, einnig kvaddi Stella okkur á
Vökuvöllum eftir 6 ár þar, en hún er núna komin yfir á
Huldustein. Hérna má sjá
myndir
frá kveðjustundinni sem haldin var í samveru í dag. Við þökkum
börnunum og fjölskyldum þeirra kærlega fyrir samveruna á
Vökuvöllum.
-
10. ágúst: Í dag héldum við uppá
afmæli Emmu, en hún átti afmæli í gær, þann 9.ágúst. Hér eru
myndir
sem teknar voru í afmælissamverunni.
-
5. ágúst: Í dag héldum við upp á
afmæli Eyþórs Loga og Kristjáns Arnar en þeir áttu afmæli í
sumarfríinu. Hér eru
myndir af þeim félögunum með kórónurnar sínar. Þar sem við
erum nú hætt að skrifa myndir á diska fyrir foreldra verðið þið
að afrita þær myndir sem ykkur langar að eiga sjálf af síðunni.