Handbók foreldra
Stefna og hugmyndafræði
Leikurinn
Námssvið leikskóla
Umhverfismennt
Tákn með tali
Skóladagatal '09-'10
Fréttabréf og dagatöl
Námskrá og skýrslur
Daglegt líf
Deildir skólans
Myndir í leik og starfi
Kennarar og annað starfsfólk
Eldhús skólans
Útskriftarárgangar
Húsið okkar
Foreldrafélagið
Foreldraráð
Úr fréttamiðlum
Ákvarðanir Skólanefndar
Tenglar

Gestabókin okkar
 
 

Veðurspá


Skólanámskrá Naustatjarnar

Hér má finna afrit af skólanámskrá Naustatjarnar

Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Skólanámskrá Naustatjarnar


Stærð á skjali:  827 KB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:


 


Náms- og kynnisferð Naustatjarnar vorið 2006

Hér er skýrsla Naustatjarnar frá náms- og kynnisferð starfsfólks 18. - 19. apríl 2006.

Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Náms- og kynnisferðin 2006

Stærð á skjali: 1.275 KB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:


 


Ársskýrsla Naustatjarnar

Hér má finna afrit af ársskýrslu Naustatjarnar,
fyrir tímabilið 1. september 2006 - 31. ágúst 2007.

Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Ársskýrsla '08-´09
Stærð á skjali 407 KB

Ársskýrsla '07-'08
Stærð á skjali: 397 KB

Ársskýrsla '06-'07
Stærð á skjali: 395 KB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:


 


Aðalnámskrá leikskóla

Hér má finna afrit af Aðalnámskrá leikskóla,
útgefinni af Menntamálaráðuneytinu.

Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Aðalnámskráin
- frá Menntamálaráðuneyti

Stærð á skjali: 234 KB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:


 


Skólastefna Akureyrarbæjar

Hér má finna afrit af skólastefnu Akureyrarbæjar,
sem var gefin út í maí 2006.
 
(Til gamans má geta þess að margar af ljósmyndunum
sem skreyta bæklinginn eru teknar hér í Naustatjörn).


Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Skólastefna Akureyrarbæjar

Stærð á skjali: 715 KB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:


 


Að beita sverðinu til sigurs sér

Námsmat – lykill að bættu námi
Ráðstefna haldin á vegum Skólaþróunarsviðs
kennaradeildar Háskólans á Akureyri
14. apríl 2007

-----------------------------------------------

Námsmat er þýðingarmikill og órjúfanlegur þáttur náms og kennslu.
Í víðum skilningi lýtur það að því að bæta nám nemanda og starf kennara.

Ráðstefnan var því ætluð kennurum á öllum skólastigum og öðru áhugafólki um skólastarf.
Til umræðu voru ýmsar áleitnar spurningar eins og:
Hver er tilgangur og gildi námsmats á hinum ýmsu skólastigum?
Hvað má sjá fyrir um stöðu og þróun námsmats í skólastarfi hér á landi?
Á hvern hátt getur námsmat bætt námsaðstæður nemenda?
Hvernig er upplýsingum úr námsmati best til skila komið til nemenda, forráðamanna og fræðsluyfirvalda?

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni voru:
Allyson Macdonald
John Pryor
Rúnar Sigþórsson
Val Brooks

Þá fóru fram umræður Brynhildar Önnu Ragnarsdóttir
og Júlíusar Björnssonar um framtíðarsýn sína
á hlutverki námsmats í skólastarfi og þróun þess.

Á ráðstefnunni var enn fremur fjöldi málstofa þar sem greint var frá ýmsum aðferðum við námsmat og þróunarverkefnum á því sviði.

Jónína Hauksdóttir skólastjóri Naustatjarnar og Sigurbjörg F. Héðinsdóttir, deildarstjóri á Tjarnarhóli, fluttu erindi í málstofu sem þær kölluðu Að vita meira og meira.

Áhugasamir og góðir kennarar vilja og þurfa að vita meira og meira um nemendur sína frá degi til dags, hvernig þeim líður, hvar þeir eru staddir í þroskaferli sínum og hvernig nám þeirra gengur fyrir sig. Einnig þurfa kennarar að meta sjálfa sig í starfi. Til þess að hafa þessa þekkingu og yfirsýn þurfa kennararnir ákveðin hjálpartæki í starfi sínu. Þessi hjálpartæki eru m.a. námsmat sem veitir kennurum vitneskju um hvar og hvernig þeir þurfa að mæta nemendum sínum þannig að nemendurnir fái sem best notið skólagöngu sinnar. Þessi hjálpartæki eru bæði formleg og óformleg; þroskalýsingar, stöðluð próf eða skimunartæki, sjálfsmat, huglægt mat og formlegar kannanir. Í þessari málstofu er sagt frá þessum hjálpartækjum sem kennarar Naustatjarnar nota við námsmat í starfi sínu.



  Að vita meira og meira
- glærur

Stærð á skjali: 642 KB

Gerð skjals:  Power Point-glærur (.ppt)
 


 


Lengi býr að fyrstu gerð

Skólaárið 2005-2006 tókum við þátt í þróunarverkefninu
„Lengi býr að fyrstu gerð”.

„Fræðilegur grunnur verkefnisins er sóttur til; Lellu Gandini, Elinor Goldschmied og Soniu Jackson, Maritu Lindahl og William Damon. Öll hafa þau rannsakað til nokkurra ára þekkingarleiðir ungra barna og samspil þeirra við hina fullorðnu í lífi sínu, einnig skrif Marianne Brodin og Ingrid Hylander um kenningar Daniel Sterns í starfi leikskólans”.

„Skólastarfi með yngstu börnum leikskólans hefur löngum verið lítill gaumur gefinn, meðan sjónum hefur frekar verið beint að elsta árgangi leikskólans.  Markmið verkefnisins var að nýta reynslu leikskólanna til að hanna kennsluleiðbeiningar fyrir yngsta stig leikskólans, og styðja þær fræðilegum rökum.  Kennsluleiðbeiningunum er ætlað að gera leikskólastarf yngstu barnanna sýnilegra og varpa ljósi á þær kennsluaðferðir sem reyndir leikskólakennarar þeirra beita”.

Verkefnisstjórn var í höndum Guðrúnar Öldu Harðardóttur og Sigríðar Sítu Pétursdóttur. Umsýslu annaðist Skólaþróunarsvið kennaradeildar Háskólans á Akureyri.

Nú hafa verið gefnar út kennsluleiðbeiningar við verkefnið. Það var unnið með styrk frá Þróunarsjóði leikskóla og Háskólanum á Akureyri í samvinnu leikskólanna Álfaheiði og Furugrundar í Kópavogi og Iðavallar hér á Akureyri. Gerðar voru kennsluleiðbeiningar um aðlögun, daglega umönnun, máltöku og námsumhverfi, sem gott er að hafa í huga í leikskólastarfi með ungum börnum. Þær eru ekki hugsaðar sem forskrift heldur sem stuðningur eða kveikja að útfærslu hvers leikskóla eða leikskólakennara fyrir sig.

Smellið á tengilinn til að opna eða vista skjalið á eigin tölvu og prentið út, ef vill.



Lengi býr að fyrstu gerð
- kennsluleiðbeiningar

Stærð á skjali: 3,74 MB


----------------------------------------------------------------
Til að lesa skjölin þarf lítið forrit sem heitir Acrobat Reader.
Hægt er að hlaða því ókeypis niður af Netinu.  Smellið á merkið:

 

Á forsíðu


Leikskólinn Naustatjörn, Akureyri
Sími 462 3676 - Netfang:  naustatjorn@akureyri.is