|
|
Mánudagurinn 18.
ágúst 2003:
Fyrstu starfsmenn mæta til vinnu og klukkan 11:00 mæta
fyrstu börnin í skólann.
Á næstu sex vikum fyllist skólinn af 93 börnum sem fylla
deildirnar fjórar sem heita Búðargil, Huldusteinn,
Vökuvellir og Tjarnarhóll.
Nöfn skólans og deilda eru dregin af örnefnum og staðháttum á svæðinu.
Hóll nokkur sem var í grennd við skólann hét Tjarnarhóll og dró nafn sitt af
Naustatjörn sem var rétt utan við
hann. Búðarlækur mun hafa komið úr Naustatjörn og runnið niður Búðargil
(nú Lækjargil). Huldusteinn er steinn í landi Hamra og er þar
Huldufólksbústaður. Nafnið Vökuvellir kemur frá býli sem stóð rétt
sunnan við Naustatjörn en nýlega er búið að rífa það hús. Fífilbrekka
var einnig bóndabær, en hann stóð norðan við
Naustatjörn.
Á heimasíðu skólans getið þið kynnst börnum, kennurum
og starfi Naustatjarnar og til að sjá myndir
af börnunum þá skuluð þið endilega kíkja inn á síður deilda.
Laugardagurinn 16. ágúst 2003:
Lykillinn að húsinu afhentur.
Þennan dag var allur búnaður leikskólans Árholts fluttur
að Naustatjörn auk þess sem nýr búnaður var fluttur frá
nokkrum birgjum. Því var í nógu að snúast en fimm
starfsmenn sáu um þessa flutninga auk fjögurra hraustra
karlmanna.
Í maí 2003:
Leikskólinn fær formlega nafnið Naustatjörn.
12. febrúar 2003:
Í dag er grunnur hússins kominn upp auk þess sem veggir
tveggja deilda eru að hluta til komnir upp.
Haustið 2002:
Byrjað að vinna í grunninum. AVH Arkitekta- og
verkfræðiskrifstofa Hauks ehf teiknar húsið og
aðalverktaki er Hyrna h/f.
|
|