Handbók foreldra
Stefna og hugmyndafræði
Leikurinn
Námssvið leikskóla
Umhverfismennt
Tákn með tali
Skóladagatal '09-'10
Fréttabréf og dagatöl
Námskrá og skýrslur
Daglegt líf
Deildir skólans
Myndir í leik og starfi
Kennarar og annað starfsfólk
Eldhús skólans
Útskriftarárgangar
Húsið okkar
Foreldrafélagið
Foreldraráð
Úr fréttamiðlum
Ákvarðanir Skólanefndar
Tenglar

Gestabókin okkar
 
 

Veðurspá

Námssvið leikskóla:

Áhersluþættir í leikskólauppeldi eru hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi og menning og samfélag.

Hreyfing:

Börn hafa ríka þörf fyrir að hreyfa sig frjálst og óhindrað, því ber að leggja áherslu á hreyfingu barna og hreyfiuppeldi.

Börn tjá sig snemma með hreyfingum, þau skynja líkama sinn og finna styrk sinn og getu.

Góð hreyfifærni eykur sjálfstraust barna og hreyfing bætir heilsu, snerpu og þol.

Málrækt:

Tungumálið er mikilvægasta tæki manna til boðskipta. Í samtölum, með krefjandi spurningum, með því að lesa fyrir börnin, segja þeim sögur og kenna kvæði og þulur er lögð áhersla á málrækt.

Hvetja þarf börn til að færa rök fyrir máli sínu, einnig skal hvetja þau til að spyrja, segja frá og hlusta með athygli.

Málörvun er best sinnt í leik, einnig eru flestir þættir leikskólastarfs vel fallnir til málörvunar.

Myndsköpun:

Börn hafa ríka þörf fyrir að tjá sig með myndmáli, þau eiga auðvelt með að tjá tilfinningar sínar í myndsköpun, sem eflir líka sjálfstraustið.

Því skal veita börnum fjölbreytileg tækifæri til að tjá sig í myndum og margs konar mótanlegum efnum.

Tónlist:

Börn eiga að fá ríkuleg tækifæri til að njóta tónlistar og iðka hana. Þá er átt við söng, hreyfingu, hlustun, og leik með hljóðgjafa.

Tónlistina er best að flétta inn í sjálfsprottinn leik barnanna, hljóð, hrynjandi, og hreyfingu.

Stuðla þarf að því að börnin þroski með sér næmni fyrir hljóðum, hreyfingu, og hrynjandi ásamt frumkvæði og frjálsri skapandi tjáningu og túlkun á tónlist.

Náttúra og umhverfi:

Börn þurfa að kynnast fjölbreytileika náttúrunnar og njóta hennar um leið og þau læra að finna til ábyrgðar gangvart henni. Því eiga börn að fá fræðslu um náttúrunna, umhverfið og verndun þess.

Þessu verður best við komið með ferðum út í náttúruna þar sem börnin gera sínar eigin athuganir og vinna úr þeim eftir getu.

Einfaldar eðlis- og efnafræðitilraunir vekja líka áhuga og ánægju barnanna.

Menning og samfélag:

Leikskólastarf á hverjum stað mótast af umhverfi sínu, atvinnu-, félags-, og menningarlegu.

Leikskólinn þarf líka að taka tillit til mismunandi fjölskyldugerðar og uppruna barnanna og efla tilfinningu þeirra fyrir því að þau tilheyri samfélaginu og séu hluti af því.

Þessu má stuðla að með samskiptum við starfsemi utan leikskólans og nýtingu umhverfisins til vettvangsferða og leikja.


 

Undirstöðuþættir og námssvið leikskóla:

Á forsíðu


Leikskólinn Naustatjörn, Akureyri
Sími 462 3676 - Netfang:  naustatjorn@akureyri.is