Leikurinn -
leikjaflokkarnir fjórir:

Leikurinn er kjarni uppeldisstarfs í leikskólum.
Hann er bæði markmið og leið í uppeldi og menntun.
Frjáls og sjálfsprottinn leikur er hið eðlilega
tjáningarform barnanna.
Reynslan tekur oft á sig form leiksins.
Í frjálsum leik eru mikilvægir uppeldiskostir sem geta
eflt alhliða þroska barnanna, þ.e. líkams-,
tilfinninga-, félags-, vitsmuna-,siðgæðis-, og
fagurþroska. Hvaða þroskaþættir örvast í leiknum fer
eftir því hvert eðli leiksins er.
Leikurinn greinist frá öðru atferli að því leyti að hann
er sjálfsprottið og skapandi ferli sem börnin stjórna
sjálf.
Sköpunarþörf og hugmyndaflug barnanna birtist í ýmsum
leikjum þeirra.
Í mörgum leikjum fá börnin hreyfiþörf sinni fullnægt og
þau æfa og þjálfa hreyfingar sínar og líkamsstjórn.
Í hlutverka- og ímyndunarleikjum, auk annarra samleikja
lærist börnunum nauðsyn þess að vinna saman og taka
tillit til annarra.
Í leikjum með leikreglum læra þau einnig að virða
annarra rétt og einfaldar samskiptareglur.
Leikjum barna má flokka niður í fjóra aðalflokka
eftir inntaki þeirra og uppeldis/menntunargildi.
Margir leikir eru fjölþættir og þeir geta flokkast undir
fleiri en einn flokk.
|
 |
Skynfæra- og hreyfileikir:
Hreyfing
Leikurinn birtist í því að börnin eru aðallega upptekin
af því að beita líkama sínum og kanna skynfæri sín.
Virkni þeirra eða leikur felst í hreyfingu og beitingu
vöðva og skynfæra.
Börnin eru að uppgötva hreyfifærni líkamans og þurfa til
þess rými og tíma, þau þurfa líka að skoða, snerta,
lykta, bragða, hlusta o.s.frv.
Hreyfingin þjálfar skynfæri barnanna, örvar gróf- og
fínhreyfingar, eflir samhæfingu hreyfingar þannig að
þeim verði fært að skynja líkama sinn á ýmsan hátt.
Með því að bjóða börnum örvandi leikskilyrði og nýja
reynslu í hreyfingu og færni líkamans er fróðleiksfýsn
þeirra vakin og þau hvött til að afla sér þekkingar t.d.
um heiti líkamshluta.
Með hreyfileikjum eykst hugtakaskilningur, s.s. fyrir
framan/aftan, yfir/undir, o.s.frv.
Tónlist
Er mikilvægur þáttur í alhliða þroska barna og ekki hvað
sýst í eflingu tilfinninga-, hreyfi-, og vitþroska
þeirra.
Rannsóknir benda til þess að leikskólaárin séu mikilvægt
næmniskeið í tónlistarþroska barna. Þegar börn tala,
syngja, hreyfa sig, dansa og spila nota þau líkama sinn
til að skynja, tjá, og túlka tilfinningar og geðhrif.
Hægt er að hjálpa börnum að læra að hlusta eftir
frumþáttum tónlistar eins og hrynjanda, hljóðlengd,
styrk, hraða, blæ og formi.
Tónlistarþroska öðlast börn með því að fá fjölbreytta
reynslu af tónlist og að fá að kynnast hljóðum og tónum
í frjálsum leik í samræmi við þroska sinn.
Vatnsleikir
Þeir hafa mikið gildi fyrir andlegan og líkamlegan
þroska barna.
Þeir auðga m.a. ímyndunarafl og skynjun og gefa börnunum
tækifæri til að kynnast eiginleikum vatnsins.
Í vatnsleikjum eykst hugtakamyndun s.s. heitt/kalt,
grunnt/djúpt, þurrt/blautt.
Þau þjálfa félagsfærni sína, örva málþroska og æfast í
því að klæða sig úr og í fötin sín.

Ferðir
Ferðir víkka sjóndeildarhring barna og reynsluheim
þeirra.
Þau fá hugmyndir að nýjum leikjum og fá betri skilning á
því hvernig samfélagið er.
Leggja þarf mikla áherslu á hreyfingu og útiveru þar sem
umhverfi barnanna býður upp á æ meiri kyrrsetu. Auk þess
fá þau tilfinningu fyrir vegalengdum og læra að rata um
nánasta umhverfi sitt.
Sköpunar- og byggingaleikir:
Listsköpun
Listsköpun eflir sjálfstraust barna og styrkir jákvæða
sjálfsmynd þeirra.
Listsköpun örvar hugmyndaflug og löngun til að tjá sig á
skapandi hátt.
Samhæfing augna og handa styrkist og börnin fá útrás
fyrir tilfinningar sínar og verklagni.
Þau njóta þess að skapa eitthvað sjálf úr margs konar
efniviði og sjá upplifanir sínar og skapandi afl birtast
í verkum sínum á áþreifanlegan hátt.
Þau þjálfa einbeitingu með því að fylgja
myndsköpunarferlinu stig af stigi án þess að gefast upp.
Börnin læra að miðla hugmyndum sínum og tilfinningum til
annarra með verkum sínum.
Byggingaleikir
Í kubbum kynnast börnin formum, eiginleikum og efniviði
hluta.
Byggingaleikir efla sköpunarhæfni, ímyndunarafl, skynjun
og fagurskyn.
Hugtakamyndun styrkist s.s. stór/lítill, stærri/minni,
fleiri/færri, langur/stuttur.
Einnig lærast formheitin þríhyrningur, ferhyrningur,
ferningur o.s.frv.
Í kubbaleik ræður hugarheimur barnanna ferðinni,
kubburinn getur verið nánast hvað sem er í hugum
barnanna, t.d. bíll, bátur eða maður.
Hlutverka- og ímyndunarleikir:
Leikurinn felst í því að börn ímynda sér að hlutir, þau
sjálf og annað fólk sé að þykjast vera annað en það er í
raun.
Börnin líkja eftir fyrirmyndum, þau setja sig í spor
annarra og lifa sig inn í atburði sem gerast í kringum
þau.
Með hugmyndaflugi sínu umbreyta börn persónum og
atburðum eftir skilningi sínum og þörfum.
Í þykjustuheimi sínum taka börn á sig margskonar gerfi,
leika fjölbreytileg hlutverk og þykjast vera hinar ýmsu
persónur, dýr eða dauður hlutur.

Þau ljá hlutverkum sínum persónulegan blæ og gefa oft
tilfinningum sínum lausan tauminn, tjá reiði,
afbrýðisemi, hræðslu og blíðu.
Regluleikir:
Í lok leikskólaaldurs vaknar áhugi barna á regluleikjum.
Regluleikir eru ýmsir hreyfileikir, eltingaleikir,
feluleikir, hópleikir og ýmis spil.
Í þessum leikjum aukast samskipti barna innbyrðis. Þau
læra leikreglur, þurfa að sýna umburðarlyndi og taka
tillit til annarra. Þau þurfa að virða skoðanir og rétt
annarra og tileinka sér umgengnishætti og framkomu sem
nauðsynleg er í samskiptum við aðra.
Börnin læra að vinna í hóp og leysa deilur án
valdbeitingar. Þau fá þjálfun í því að beita rökhugsun
og útsjónarsemi, úthald eykst og félagsþroski þeirra
eflist.
Í flestum þessum leikjum þarf hinn fullorðni að stjórna,
einkum til að byrja með. Einnig er nauðsynlegt að vernda
hefðbundna gamla leiki frá gleymsku með því að kenna
börnum þá og njóta þeirra með þeim.
|