Deildir skólans eru fimm og heita þær Fífilbrekka, Búðargil, Huldusteinn,
Vökuvellir og Tjarnarhóll.
Á
Fífilbrekku eru 30 börn, þau eru fædd árið
2006. Þar
vinna: Greta Kristín, Ellý Dröfn
og Hulda leikskólakennarar og Lauga
leiðbeinandi.
Á
Búðargili eru 26 börn, þau eru fædd 2006 og
2007.
Þar vinna: Elísabet og Margrét
leikskólakennarar og Oddur leiðbeinandi.
Á
Huldusteini
eru 24 börn, þau eru fædd 2007. Þar vinna: Heiða, Anna
og Stella Bryndís leikskólakennarar.
Á
Vökuvöllum eru 26 börn, þau eru fædd 2007 og 2008.
Þar vinna Sibba og Vilborg leikskólakennarar, Elín félagsfræðingur
með kennsluréttindi og Sigrún Ágústa
grunnskólakennari.

Á
Tjarnarhóli eru 20 börn, þau eru fædd 2008 og 2009.
Þar vinna Ásdís Hrönn, Halla og Inga leikskólakennarar
og Eva Hrönn leiðbeinandi.
Magga, Gígja, Jón Heiðar og Rósa leiðbeinendur fara á milli deilda í afleysingar
og Rósa Ösp á Vökuvöllum og Kristín
Þóra á Búðargili vinna frá 14:00-16:15
Nöfn skólans og deilda eru dregin af örnefnum og staðháttum á svæðinu.
Hóll nokkur sem var í grennd við skólann hét Tjarnarhóll og dró nafn sitt af
Naustatjörn sem var rétt utan við
hann. Búðarlækur mun hafa komið úr Naustatjörn og runnið niður Búðargil
(nú Lækjargil). Huldusteinn er steinn í landi Hamra og er þar
Huldufólksbústaður. Nafnið Vökuvellir kemur frá býli sem stóð rétt
sunnan við Naustatjörn en nýlega er búið að rífa það hús. Fífilbrekka
var einnig bóndabær, en hann stóð norðan við
Naustatjörn.
Á heimasíðu skólans getið þið kynnst börnum, kennurum
og starfi Naustatjarnar og til að sjá myndir
af börnunum þá skuluð þið endilega kíkja inn á síður deilda.
|