Umhverfismennt:

Grænfáninn
Útikennsla
Urðarbrunnur
Skýrslur nefndar
"Grænir" tenglar



Tenglar á forsíðu:

Handbók foreldra
Stefna og hugmyndafræði
Leikurinn
Námssvið leikskóla
Umhverfismennt
Tákn með tali
Skóladagatal '09-'10
Fréttabréf og dagatöl
Námskrá og skýrslur
Daglegt líf
Deildir skólans
Myndir í leik og starfi
Kennarar og annað starfsfólk
Eldhús skólans
Útskriftarárgangar
Húsið okkar
Foreldrafélagið
Foreldraráð
Úr fréttamiðlum
Ákvarðanir Skólanefndar
Tenglar



Gestabókin okkar


Veðurspá

Umhverfismennt á Naustatjörn::

Strax við upphaf skólans í ágúst 2003 var mörkuð sú stefna að umhverfismennt skipaði stóran sess í skólanámskrá skólans. Í upphafi buðu tveir kennarar sig fram í umhverfisnefnd vegna áhuga á því umhverfisvæna starfi sem stefnt var að við skólann. Það voru Inda Björk Gunnarsdóttir og Linda Egilsdóttir og þær sáu um að undirbúa og kynna sér grænfánaverkefnið auk þess að koma á framfæri upplýsingum til annarra kennara.

Árið 2005 var sótt um að Naustatjörn yrði skóli á grænni grein og fór skólinn formlega á grænu greinina í september 2005.

Markmið Naustatjarnar með umhverfismennt eru:


- að njóta náttúrunnar árið um kring og nýta hana sem leiksvæði og efnivið til uppgötvunar, leikja og skapandi starfs.
- að flokka úrgang og pappír til endurvinnslu í stað þess að kaupa nýjan efnivið.
- að safna lífrænum úrgangi í þar til gerðar safntunnur
- að nota umhverfisvænar hreinsivörur við ræstingu skólans
- að rækta grænmeti og plöntur í garðinum
- að spara raforku og vatn eins og hægt er


Umhverfissáttmáli Naustatjarnar

Við þekkjum nánasta umhverfi okkar og göngum um náttúruna af virðingu
Við endurnýtum það sem hægt er
Við flokkum þann úrgang sem fer í endurvinnslu
Við spörum orku


Leiðir að Umhverfissáttmála Naustatjarnar eru m.a.

Að efla umhverfisvitund nemenda með fræðslu, góðu fordæmi og verkefnum
Að nýta efni sem fellur m.a. til sköpunar, rannsókna og tilrauna
Að flokka lífrænan úrgang til moltugerðar. Pappír, pappi, fernur, gler, málmar, plastumbúðir, kerti og rafhlöður er flokkað og sett í endurvinnslu
Að gæta þess að slökkt sé á rafmagnstækjum þegar þau eru ekki í notkun. Að slökkva á ljósum á svæðum þar sem enginn er og vatn ekki látið renna að óþörfu.

Umhverfisnefnd Naustatjarnar skipa:
 

Huldusteinn:

Aðalheiður Þ. Guðjónsdóttir

Búðargil:

Aðalheiður Hreiðarsdóttir

Tjarnarhóll:

Anna Bára Hjaltadóttir

Umsjónarmaður Urðar (moltutunnan)

Vökuvellir:

Elín Vilhjálmsdóttir

Fífilbrekka:

Ellý Dröfn Kristjánsdóttir

Verkefnisstjóri

Stjórnendur:

Inda Björk Gunnarsdóttir

Fulltrúi nemenda:

Kári Hrafn Ágústsson

Fulltrúi nemenda:

Lea Björk Fannarsdóttir

 

Fulltrúi foreldra:

Á forsíðu


Leikskólinn Naustatjörn, Akureyri
Sími 462 3676 - Netfang:  naustatjorn@akureyri.is