Skólastarfið
Deildir skólans
Starfsfólk
Fréttabréf og dagatöl
Myndir í leik og starfi
Eldhús skólans
Fyrir foreldra
Samstarf við Naustaskóla
Húsið okkar
Ákvarðanir Skólanefndar
Tenglar

Gestabókin okkar
 
 

Veðurspá

Athugið, kæru foreldrar:
Við hvetjum ykkur til að fylgjast með fundargerðum Skólanefndar, þar er oft að finna áhugaverðar upplýsingar sem snúa að skólum bæjarins.

Sumarlokun 2012 - 2014.
Skólanefnd hefur tekið ákvörðun um sumarlokun leikskóla Naustatjörn lokar eftirfarandi vikur.
Sjá hér
2012- 25. júní - 20. júlí
2013 - 8. júlí - 2. ágúst
2014 - 23. júní - 18. júlí
Samþykkt í Skólanefnd 9. janúar 2012

Ný gjaldskrá.
gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2012.

Samþykkt í Skólanefnd 17. október 2011.


 

=================================================

Sumarlokun 2011 - 2013.
Naustatjörn lokar eftirfarandi vikur.
Sjá hér
2011- 4. júlí - 29. júlí
2012 - 16. júlí - 13. ágúst
2013 - 18. júní - 16. júlí

=================================================
Sumarlokun 2010.
Naustatjörn lokar í sumar  vikurnar 12. júlí til og með 9. ágúst. Sjá hér.

================================================

8. apríl 2009:

 
Opnunartími leikskóla
Skólanefnd samþykkir að opnunartími leikskóla Akureyrarbæjar verði frá kl. 7.45 - 16.15 daglega frá og með 1. ágúst 2009. Hér má sjá tilkynningu um þessa breytingu frá Skóladeild.

Leikskólar í Naustahverfi
Ákveðið var að bæta 5. deildinni tímabundið við Naustatjörn. Deildin verður staðsett í húsnæði Naustaskóla og þar með verði hægt að mæta eftirspurn eftir leikskólarýmum í Naustahverfi.

Naustaborgir - útikennslusvæði
Erindi dags. 9. febrúar 2009 frá umhverfisnefnd leikskólans Naustatjarnar f.h. kennara og barna í leikskólanum þar sem óskað er eftir samvinnu við bæjaryfirvöld vegna notkunar á útivistarsvæði í Naustaborgum. Þá lá einnig fyrir erindi dagsett 10. mars 2009 frá skólastjóra Lundarskóla f.h. starfsfólks, þar sem óskað er eftir úthlutun á svæði fyrir útikennslustofu í Naustaborgum fyrir nemendur Lundarskóla.
Framkvæmdaráð tók erindi leikskólans Naustatjarnar fyrir á fundi sínum 20. febrúar sl. og samþykkti að ákveðið svæði yrði grisjað og að komið yrði upp grillaðstöðu. Að öðru leyti var erindinu vísað til skólanefndar og skipulagsnefndar.
Skólanefnd tekur mjög vel í erindið og styður framkvæmdina. Nefndin beinir því til skólastjóra Naustatjarnar, Naustaskóla og Lundarskóla að eiga samstarf um verkefnið.

Samþykkt í Skólanefnd 6. apríl 2009.

=================================================
Sumarlokun 2009.
Naustatjörn lokar í sumar vikurnar 6. júlí til 17. júlí.

Samþykkt í Skólanefnd 19. janúar 2009.

=================================================
Reglur vegna niðurfellingar á fæðisgjaldi.
Ef barn er fjarverandi úr leikskóla í 4 vikur samfellt geta foreldrar óskað eftir að fá niðurfellingu á fæðisgjaldinu þann tíma sem barnið er fjarverandi. Tilkynna þarf fjarveruna til leikskólans og verður þá fæðisgjaldið leiðrétt á næsta greiðsluseðli.
Matseðlar og innkaup eru skipulögð minnst með mánaðarfyrirvara, þar sem gengið er út frá þeim fjölda sem skráður er í skólann hverju sinni. Í fjárhagsáætlun er gert ráð fyrir ákveðnum fjölda barna í fæði og innkaup eru gerð út frá þeim fjölda.
Reglur þessar gilda frá 1. janúar 2008.

Samþykkt í Skólanefnd 19. nóvember 2007.


=================================================
Opnunartími leikskóla.
Opnunartími leikskóla bæjarins nú frá kl. 07:45 í stað 07:30.  Skólinn opnar um leið og fyrsti kennari kemur í hús og stendur forstofan foreldrum og börnum opin.
Einnig breytist lokunartími Naustatjarnar 20. ágúst 2007, þá lokar skólinn kl. 17:00 í stað 17:15.

Samkvæmt nýrri reglu þurfa að lágmarki að vera 6 börn skráð með tímann frá 07:30 - 07:45 og frá 17:00 – 17:15 og þurfa þau að skuldbinda sig í þá vistun út skólaárið.

Samþykkt í Skólanefnd 29. janúar 2007


Á forsíðu